Hvernig fannst ykkur lokaþátturinn af Á gamans aldri? 😊 „Fólk á að hafa ástríðu fyrir því sem það gerir og njóta lífsins. Ef fólk hefur drauma á það að reyna að láta þá rætast,“ segir Guðrún Fjeldsted. Guðrún hefur keppt í hestaíþróttum í yfir 60 ár og rekur reiðskóla á Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Í þessu hjartnæma broti dregur hún saman helsta lærdóm lífsins: Að eignast trausta vini, vera með skemmtilegu fólki og hafa gaman. ✨ Þetta brot er úr lokaþætti annarrar seríu af Á gamans aldri, en það eru íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Þú getur horft á alla þættina af Á gamans aldri í spilara RÚV! 📺 #íslenskt #ruvspilari #krútt #ragnhildursteinunn
Suggested Credits
Tags, Events, and Projects