Hvað gerir góða pítsu góða? 🍕 „Eigum við ekki að segja bara einfaldleikinn,“ segir Jakob Hörður Magnússon, sem opnaði fyrstu pizzeríuna á Íslandi árið 1979. Í upphafi þurfti hann að útskýra matseðilinn rækilega fyrir landanum og enn þann dag í dag þekkir hann fólk á sínum aldri sem finnst pítsa hreinlega ekki vera neinn alvöru matur! 🇮🇹 Þetta brot er úr þriðja þætti í annarri seríu af Á gamans aldri, en það eru íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Þú getur horft á Á gamans aldri í spilara RÚV! 📺 #íslenskttiktok#rúv #ágamansaldri#rúv #pizza
Suggested Credits
Tags, Events, and Projects